Manchester United úr leik í bikarnum Middlesboro var rétt í þessu að sigra Manchester United í fjórðu umferð bikarsins. Fyrra markið kom á 85 mínútu þegar Noel Whelan komst í skyndisókn og skoraði eftir rosaleg varnarmistök hjá hinum franska varnarmanni Manchester Black. Síðan bætti Campell við öðru marki fjórum mínútum síðar og örlög Manchester United í bikarkeppninni þar með ráðin. Þetta var stór sigur fyrir fyrrverandi aðstoðarstjóra Macnhester United Steve McClaren. Þetta var rosalega harður leikur þar sem sex leikmenn fengu að líta gul spjöld. Stockdale, Greening og Cooper fengu að sjá gult hjá Middlesborugh en Wallwork, Silvestre og Scholes hjá Manchester mönnum.
bæði lið áttu 10 skot en það fóru sex þeirra á markið hjá Middlesboro en einungis fjögur hjá Manchester. En United átti 12 hornspyrnur sem þeir náðu ekki að nýta á móti einungis fjórum hjá Middlesboro. Það verður spennandi að sjá hverjir verða bikarmeistarar þetta árið. Alltaf gaman að sjá þegar litlu liðin taka þessi stóru í gegn. Kannski að Middlesboro hafi verið svona reiðir yfir því að Manchester stálu Forlan af þeim ? Hver veit.