David Beckham bíður nú milli vonar og ótta eftir því hvort hann þurfi að gangast undir aðgerð á hné. Sú aðgerð mundi koma í veg fyrir að spili knattspyrnu næstu sex vikurnar og yrði að sjálfsögðu gífurleg blóðtaka fyrir Manchester United sem berjast bæði í deildinni og í meistaradeild Evrópu. Alex Ferguson er æfur yfir því að hann skyldi spila meiddur í leiknum gegn Þjóðverjum og skammar enska knattspyrnusamabndið fyrir að hafa ekki gripið í taumana og komið í veg fyrir að hann spilaði.