Igor Stepanov hefur skrifað undir hjá Arsenal og er líklegt að hann leiki gegn Chelsea á miðvikudaginn. Talið er að félagi Stepanovs í landsliði Lettlands, Andrejs Rubin, sé einnig á leið til Lundúnarliðsins en þar sem Rubin hefur leikið færri landsleiki en Stepanov er erfiðara að fá atvinnuleyfi fyrir hann.