Fylkir mun hampa Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu ef marka má skoðanakönnun á Íþróttavef mbl.is. Þar segja 65,4% þeirra sem greiddu atkvæði að Fylkismenn standi upp sem sigurvegarar en auk þeirra eiga KR-ingar og Eyjamenn möguleika á titlinum. 22,1% telja að KR-ingar hafi þetta á endasprettinum en 12,5% segja að Íslandsbikarinn fari til Vestmannaeyja í þriðja sinn á fjórum árum.