Martin O´Neill nýi stjórinn hjá skoska knattspyrnuliðinu Celtic fékk ekki að kaupa Mark Bosnich frá Manchester United í sumar en nú leitast hann við að fá Ástralan lánaðan norður til Glasgow. Bosnich fær líklega ekki mikið að spreyta sig í vetur eftir að United keypti Frakkann Fabien Barthez og gæti þetta því verið góður kostur fyrir hann. Mér finnst að Bosnich ætti að slá til!