Sven Göran Erikson framkvæmdarstjóri Lazio og verðandi stjóri enska landsliðsins ætlar ekki að taka við landsliðinu fyrr en samningur hans við Lazio rennur út. Hann missir þar með af leikjum gegn Finnum og Albönum en Peter Taylor og Steve McLaren stjórna liðinu í þeim leikjum