Claudio Ranieri hefur neyðst til þess að ráða þá Graham Rix og Ray Wilkins aftur til félagsins eftir að leikmenn félagsins höfðu krafist þess að þeir yrðu teknir aftur um borð.
En eins ao allir vita þá rak Ranieri þá bæða í gær. Dennis Wise og Gianfranco Zola fóru á fund Ranieri nokkrum klukkutímum eftir að það spurðist út að þeir hefðu verið reknir. Þeir sögðu að þessi ákvörðun hefði lagst illa í mannskapinn og sögðu honum að hann yrði að ráða þá aftur, annars væri hætta á uppreisn innan hópsins.
Ranieri gaf undan þrýstingnum og réð þá báða aftur, en ekki er vitað hversu lengi það verður því samningar þeirra beggja renna út næst sumar.