Hæ,

Ég á ofsalega sætar kisur sem heita Max og Grettir. Ég gaf Max nafn en bróðir minn Gretti. Grettir er appelsínugulbröndóttur og Max svartur og hvítur.

Max er gæfari en Grettir. Hann er samt ekki algjör gælukisi. Þeir eru bræður þó þeir séu ekki mjög líkir. Þeir veiða ekki mikið þótt þeir hafi komið með einn fugl, eina rottu og fullt af laufblöðum.
Einu sinni sótti Grettir mig og hoppaði upp í glugga, horfði mjög vesældarlega á fuglana í trjánum og svo á mig og mjálmaði. Ég held að hann hafi verið að segja : Náðu í fugl fyrir mig annars klóra ég þig.

Nokkrar kisur hafa reynt að flytja inn til mín eftir að ég fékk mínar en mínar kisur kæra sig ekkert um það. Þær bara reka þær burt (horfa illilegum augum á kisuna og mjálma á mig).
……….