Nýjustu fjölskyldumeðlimirnir Þann 7. júní kom læðan okkar litla loksins með krílin sín litlu, við vorum búin að bíða lengi spennt. Á aðeins tveimur tímum voru allir fjórir ketlingarnir komnir í heiminn og hin nýbakaða móðir fór að hreinsa allt og alla og gera fínt. Fressinn okkar átti svo ekkert í þessum litlu greyjum eins og við höfðum vonað og honum er líka bara slétt sama um þessa kettlinga, hann reyndar fór snemma að tékka á þeim og þefa svolítið en síðan er honum alveg sama. Í dag eru þeir nákvæmlega 3 vikna og búnir að opna augun og eyrun og farnir að skríða svolítið um. Þetta eru mestu krútt ever en verst að maður má varla knúsa þá því hún er svo stressuð greyið að hún tekur þá bara af manni.