Aaaaðeins að skjóta því að þettta er fremur tilgangslaust comment.
Í stað þess að benda á “hverjir eigi/þér finnst að skyldu sjá um að redda”, þá gera frekar það sem þú getur sjálfur.
Þó menn séu stjórnendur hér í ólaunuðu starfi er ekki hægt að ætlast til að þeir komi með stanslaust með greinar fyrir okkur hina. Þú ert sjálfur búinn að senda inn marga korka síðustu daga, en í stað þess að senda inn kork eftir kork, þá sendu inn korka sem eru líklegir til að vekja mikinn áhuga/umræður.
Ef þetta skiptir þig svona miklu máli að halda þessu ahugamáli virku, taktu þig þá til og finndu nýjar og/eða áhugaverðar greinar frá útlöndum og þýddu þær hérna, svo ég nefni eitt dæmi…
Nú eða bara fara auðveldari leiðina og senda inn hrúgur af “DÍSEL ER BETRA EN BENSÍN” eða “japanskir bílar eru ömurlegir og amerískir bestir” ;)
Ef það eru sendir inn korkar sem líklegir eru til að vekja umræður og áhuga þá bætir það auðvitað virknina hérna til muna, ef við gefum okkur að einhverjir kíki hingað inn.
Engin þörf á stjórnendum til að skapa virk skoðanaskipti í lýðræðisríki :)
My 2 cents