Sæll,
Hilux er auðvitað ágætis jeppar ef þú vilt alltaf vera aftastur í ferðum, því þessi 85hestöfl sem þessi bíll er(bensín), eru ekki mjög vænleg til árangurs(mín reynsla), svo eyðir hún allt uppí 25l/100km.
Turbo Diesel Hilux er að mínu mati þó skárri kostur og þá áttu að mauk tjúna þetta, en ég bendi þér á að ennþá ertu aftastur í röðinni! en hann eyðir ca.10-15l/100km, og fer alveg uppí 30l í “átökum”!
En ef þú vilt vera framar í bílröðinni, þá færðu þér Patrol, því þar ertu kominn með meiri kraft, MILLJÓN sinnum betri fjöðrun, því það er ekki fyrir svartan mann að sitja í þessum Hilux fiskikörum!, eyðslan er svipuð og í Td Hilux, ca 15L, en þú þarft að vísu að hugsa um þetta eins og barnið þitt og skipta um allt á réttum tíma ef þetta á ekki að valda þér mörg hundruð þúsund króna kostnað í viðgerðir.
Og auðvitað færðu þér Blow off ventil í Pjattrolluna ef þú ert þar að segja að taka eitthvað mark á því sem ég er að skrifa.
EN ef þú villt vera fremstur í röðinn þá færðu þér Amerískt! Það er einn fjólublár Willys á 44" með 360vél og á ekki nema 750.000kall sem mér finnst vera gjafaverð! Ef ekki þá er alltaf hægt að fá sér, Blazer, Bronco II, F-150, Cherokee eða Willys því þetta eru bílar sem svíkja þig ekki og skilja þig ekki eftir neðst í brekkunni í reykmekki og kvarta yfir því að þeir komist ekki upp! NEI þetta eru bílarnir sem enda yfirleitt á því að draga alla Togogýta fiskikörin upp brekkurnar!
En það er nú kannski ekkert sniðugt ef þetta á að vera þinn eini bíll, því það er ekkert sniðugt að vera á Amerísku innanbæjar sem eyðir 30-40L,
jæja ég er hættur!
kv, GEIRI KLIKKKKK
P.s: Af hverju fær marr ekki að skrifa svona ritgerðir í skólanum?