Ég er að hugleiða að kaupa mér Grand Cherokee ‘95 - ’96. Ég er búinn að lesa nokkuð mikið á netinu um ýmis vandamál sem hafa komið upp sér í lagi hvað varðar sjálfskiptinguna og bremsurnar. Það er nokkuð erfitt að átta sig á hversu algeng þessi vandamál eru þegar maður er að lesa greinar á netinu og langar því að heyra frá einhverjum sem þekkir vel til þessara bíla, helst af eigin raun.
Kveðja
Grantlee