Hvað finnst ykkur svo um nýju Bob Dylan plötuna? Ég er nýbúinn að fá mér hana og því ekki búinn að hlusta á hana nóg en við fyrstu hlustun virðist þetta vera feikna plata, ég vað ekki fyrir vonbrigðum (gerði mér reyndar engar sérstakar vonir). En ég býst við því að ég sendi inn einn lítinn plötudóm þegar ég hef hlustað meira á hana.

En svakalega er kallinn orðinn veikur í röddinni, á sumum köflum er bara pínlegt að hlusta á sönginn hjá honum.