fann þennan texta á netinu. ég fattaði samt ekki textann fyrr en ég var búin að lesa hann tvisvar yfir…

Já þú trúir ei glatt,
en ég segi það satt
að ég er afi minn.
Ég er afi minn,
ég er afi minn.
Já þú trúir ei glatt,
en ég segi það satt
að ég er afi minn.

Fyrir ótal mörgum árum þegar ég var tuttugu og eins
ég var giftur ungri ekkju sem var kölluð Lilla Sveins,
hún átti unga dóttur sem var alls ekki svo ljót
og pabbi minn varð ástfanginn og giftist þeirri snót.

Þetta varð til þess að nú er pabbi tengdasonur minn
og dóttir mín varð konan hans og var því móðir mín
þetta var nú orðið nokkuð flókið sem er von
og ekki var það betra er ég eignaðist svo son.

Því litli snáðinn var nú orðinn mágur pabba míns
og var því orðinn nokkurs konar frændi pabba síns
en þar sem hann var frændi minn þá var hann líka bróðir minn
og frænka hans sem var dóttir mín var orðin tengdamóðir mín.

Ég er afi minn,
ég er afi minn.
Já þú trúir ei glatt,
en ég segi það satt
að ég er afi minn.

Svo eignuðust þau son einn daginn pabbi og dóttir mín
sem gerir það að verkum að ég er afi bróður míns
og konan mín er orðin núna móður móðir mín
sem leiðir það af sér að hún er orðin amma mín.

Ég er afi minn,
ég er afi minn.
Já þú trúir ei glatt,
en ég segi það satt
að ég er afi minn.

Ef konan mín er amma mín þá er ég barna barn
og ég get ekkert gert af því þó ég sé eigingjarn
en ég er sennilega alveg einstakt tilfelli
að vera giftur ömmu sinni er merki um elli.

Ég er afi minn,
ég er afi minn.
Já þú trúir ei glatt,
en ég segi það satt
að ég er afi minn.