Hjálmar voru rétt áðan í þætti á RÚV sem heitir Hljómsveitin. Vá, hvað þeir stóðu sig ótrúlega vel og músíkin sem þeir voru að skapa var ótrúleg. Þeir eru tvímælalaust besta íslenska hljómsveitin í dag og er að gera lang skemmtilegustu hlutina. Þeir voru með í láni Samúel úr Jagúar og stelpu sem spilaði á klarinett. Þvílík bomba sem framkölluð var í sjónvarpssal. Mæli með því að þeir sem ekki sáu reddi sér, horfi á endursýningu eða eitthvað. Hlakka til að hlusta á nýja plötu frá þeim fyrir jól, vonandi.

Reggí on!