Margir muna enn hörmungina sem Daikatana var og enn eru slatti af eintökum í hillum tölvuleikjaverslana Reykjavíkur sem munu sennilega ekki fara þaðan í bráð. Ion Storm hefur nú gefið út leik sem er algjör snilld og á ekkert skilt við Daikatana.
Ion Storm gaf út Deus Ex (machina)
Þessi leikur er svo mikil snilld að þú verður aldrei samur eftir að hafa spilað hann, Þessi frábæra blanda af FPS RPG og Action Adventure er öllum öðrum leikjum í þessum bransa fremri.
Leikurinn Gerist í náinni framtíð Þar sem þú leikur JCDenton sem er ‘Augmented’ Súper agent fyrir anti-Terrorist samtök.
Þessi leikur líkist system shock 2 ansi mikið í spilun nema hvað möguleikarnir eru mikið fleiri og þú ert að berjast við álvöru fólk. ‘Plottið’ í leiknum er eitt það ef ekki allra besta ‘plot’ sem ég hef nokkru sinni séð í leik.
Það er því ekkert skrítið að PC-gamer uk. Hafi gefið honum 95%
þannig að ef þú ert að fíla fyrstu persónu skotleiki með RPG elementum og Hidden & dangerous skalltu svo sannarlega skella þér á þennan hann er vel þess virði.



p.s Afsakið Review lookið en ég bara varð að segja þeim sem vissu ekkert um þennan leik frá honum, snilldin er einfaldlega svo mikil :o)

written by Ævar Ö. Kvaran. A.K.A SmaShe