Langt er nú síðan nýtt orð hefur verið skrifað á þessu áhugamáli.

Allt er breytingum háð eins og sannast skal með þessum skrifum. Verð að segja að mér finnst það tími til kominn að breyta til og tilkynna þeim liðum sem ætla láta sjá sig að fara æfa sig í að spawna.

Nú? Af hverju? Svarið er einfalt.

MurK mætir.

Eftir langa langa bið þá höfum við ákveðið að mæta aftur og sjá hvort þeir sem hafa verið að vinna síðustu.. ég veit ekki töluna á því almennilega. Ætli það séu ekki 4 skjálftar síðan við mættum? 5?
Leyfi öðrum það eftir að hafa slíka hluti á hreinu.

Það sem er á hreinu er að það rykið á gömlum mýslum hefur verið þurrkað af og allt stefnir í skjálftatitlar muni skipta um hendur.

Hlakka til að sjá ykkur krúttin mín.

Mana nú alla til að afsanna skrif mín og mæta tilbúnir á næsta skjálfta. Væri ekki leiðinlegt að fá nú smá samkeppni :-)

En hey, fyrst ég er nú í þessum greinarskrifum að þá væri gaman að fá að vita hvaða lið ætla að mæta á komandi mót og hvort að einhverjir hafi misst trúnna á okkur eftir þennan tíma og haldi að ég muni ekki standa við stóru orðin? :-)
Mbk,