Vegna undarfarinna umræðna um bann á warez á #quake.is
Þá verð ég að segja að ég sé sammála um það en aftur á móti rak ég augun í crack á sama stað og talað var um warez og var því skellt saman í einn graut.
Mér finnst að crack eigi ekki að flokkast undir warez því að ég nota það á mína eigin leiki, Það er nefninlega óþolandi að vera með full installaðan leik allt uppí 3 gíg og samt þurfa að hafa diskinn í. Það er alger vitleisa að mínu mati og þó margir noti crack ólöglega þá þýðir það ekki að það sé eða eigi að vera ólöglekt. Og þó einhverjir drepi með eldhúshnífum þá þýðir það ekki að það ætti að banna þá.

Því segi ég Bönnum einungis Warez og Serial á #quake.is en ekki Crack

Takk Fyrir.
Ævar Örn Kvaran