Hvað er þetta með Quake 3 og þessa sífelldu breytingu á útgefnum borðum, það er alltaf að koma .tmp eða a/b/c útgáfur af borðum sem eru notuð og eru í spilun í dag. Maður þarf alltaf að fylgjast með og vera viss að maður sé með réttu útgðafuna af þessu og hinu. Alltaf að downloada point release af Quake 3 og vera viss um að maður sækji nú þetta point relesase en ekki annað. Sífellt verið að stagbæta fyrirfram gallaðan leik.

Ok, ég viðurkenni að þetta var einnig svona fyrst um sinn með uppfærslu á Q2 en það voru litlar skrár og ekki jafn mikill fjöldi.
En borðunum var ekki breytt. Q2DM 1-8 voru eins allan tímann sem ég spilaði þann leik (og spila enn). Það var aldrei verið að hringla í hinu og þessu bara til þess að bæta control og fleira. Það er mjög pirrandi að geta ekki masterað borð og eiga síðan von á að þurfa að breyta leikaðferð sinni á því mappi bara vegna þess að einhverjum hálfvita fannst sniðugt að færa shotgun hingað, ammo þangað og setja mynd af sjálfum sér á leynistað.

Quake III er gallagripur og ég legg til að fólk taki hann með sér á áramótabrennurnar og taki aftur upp Q2 chaingun til að murka andsæðinginn en ekki þetta übergaÿ lightning gun.

Sjáumst við brennuna,
Roland
p1mp.Roland