Sumir gera það, ég persónulega myndi ekki gera það nema ef hann væri að urra einhvað svakalega en aldrei aaaaaaaaaaaldrei fast, þetta er viðkvæmasti parturinn af hundum og virkilega sárt fyrir hann að vera slegin þarna.
Kanski, sérstaklega ef það er rifið í þau. Hef annars ekki mikla reynslu af því. En ég fikta oft og leik mér einhvað með eyrun á hundum en fæ aldrei nein viðbrögð, svo ef maður rekst í trýnið þá heyrir maður vel að þetta er ekki gott.
Hélt að það mætti alls ekki slá þá þar gæti boðið upp á bit seinna meir annars var ég á hunda námskeiði um daginn og okkur var kennt að klípa/snúa uppá kinnina hjá þeim. og sega NEI! Persónulega myndi ég aldrei slá barnið mitt né hund! ekki það að ég sé að klípa barnið mitt hehe
Sko persónulega þá myndi ég ekki slá á hundinn með hendinni. Þá kannski hættir hann að gera mismun á klappi/klóri og þegar þú ert að lemja hann og verður alltaf hræddur við þig. Taktu dagblað og lemdu hann laust á trýnið. Síðan þróaðu þetta bara þannig að þú lemur bara nálægt honum. Svo þegar hann sér að þú tekur blaðið upp þá á hann að hætta.. En þetta tekur náttúrulega dáltinn tíma að þróast og lærast svo ekki fara of hratt áfram.
Trýnið á hundi er mjög viðkvæmt. Held það sé heldur óhentugt ef þú vilt skamma hann / refsing.
Auðvitað fer þetta allt eftir stærð á hundinum.. Ef þú ert með lítinn hund skaltu fara varlega að refsingunum en ef hann er mjög stór verður þú að aga hann vel hvort sem eiginlegu ofbeldi eða ekki sé beitt. Sjálfur á ég hund í stærri kantinum en er þó heldur á móti því að beita hann “ofbeldi” og ríf ég frekar í hnakkann á honum eða slæ laust aftan við háls hans.
Þetta fer auðvitað allt eftir hundinum en ef það er eitthvað sem ég ekki þoli eru óábyrgir eigendur sem koma fram við 30-50kg dýrið sitt sem kjöltu rakka.
Ég er þegar merktur fyrir lífstíð eftir að mæta sem aðstoðarmaður til þjálfunar sýningarhunda og þurfa að stía tveimur stórum hundum í stundur þar sem ung dama ákvað skyndilega að sleppa hundinum sínum sem leiddi til slagsmála.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..