Jæja þá er það afstaðið og skiptar skoðanir um hvort ég að tíkin mín hafi verið blautari á eftir ;) hún var alls ekki sátt við árásina þó að hún hafi í raun komið sér í þá aðstöðu að þurfa nauðsynlega á baði að halda eftir að hafa sest ofan í kókamjólkurpoll sem hún fann meðan við vorum úti að labba. Eruð þið með einhver góð ráð til að baðið verði þolanlegra? hún var að reyna að flýja allan tímann sem þýddi að ég leit út eins og ég hefði pissað á mig þegar þetta var búið. samt nokkuð sátt með að hún beit ekkert né klóraði vííí. semsagt í hnotskurn ofsa dugleg en ég vil ekki að bað sé eitthvað sem er alls ekkert skemmtilegt. any ideas?