Ég var að velta fyrir mér, vitiði um einhverja hundategund sem er sérstaklega góð með köttum? langar í leikfélaga handa kisanum mínum og langar soldið í hund ef það myndi ganga, það er, kisinn minn er nátturulega fyrstur í forgangsröðinni, þar sem ég er búin að eiga hann í næstum 3 ár. ég var að pæla í weimaraner en eftir að hafa lesið mig til um soleiðis hunda þá er ég mjög smeik við þá, ætla að finna leikfélaga sem lítur á kisan minn sem ofsa skemmtilega vin en ekki kvöldmat ;) það væri frábært að fá að heyra hvað ykkur finnst um þetta.

kv. Pooh