Hæhæ!

Við erum með Border Collie hund (15% íslenskur) sem verður eins árs í júlí.
Við vorum með hann í sveit á Kjalarnesinu, en nú erum við flutt í íbúð án garðs og allt, og það er engan veginn að henta greyinu.
Hann heitir Kolur, er svartur með hvítan kraga og hvítar tásur. Eins og þeir sem þekkja þessa tegund vita er hann afskaplega fjörugur, og er því ekki hentugur í blokkar íbúð eða neitt svoleiðis. Og þó hann sé ekki grimmur, þá er þetta ekki leikfang fyrir krakkana.
Ef einhver getur tekið hann að sér í hús með garði eða sveit, þá hafið samband í síma 849-3947 (María).