Fyrir nokkrum mánuðum í Október var ég á Hundadögum í Garðheimum. Það var verið að draga upp úr sona kassa seinna um daginn. Ég tók einn miða og skrifaði nafnið mitt og allt þannig. Ég var svo heppinn að það var hringt í mig seinna og sagt að ÉG hefði unnið..
Það sem ég vann var heil 15 KÍLÓ af ProPlan hundamat..
Síðan fékk ég líka ProPlan bol og derhúfu, Qality Street, After Eight, hundabein, pakka af hundabeinum, hundasjampó, hundanæringu, meira nammi og ég veit ekki hvað og hvað..en ég er ekki alveg að skilja hvers vegna það er verið að gefa mannamat?
En samt…15 kíló…þetta er held ég ekki enn klárað….