Jæja nú eru liðnar 3 vikur frá því að Bassi litli fótbrotnaði og er búin að vera í gifsi síðan þá, það var komin hræðileg lykt í gifsið hans því það var alltaf að blotna og verða skítugt því hann gaf ekkert undan með gifsið. Þannig að ég fór með hann uppí víðidal og ætlaði að biðja þær að skipta og þær byrjuðu á því að taka mynd og svo sögðu þær bara að hann þyrfti ekki að vera lengur, þetta hefði tekist allt svo prýðilega og þetta væri alveg gróið. Ég var svo glöð að þið trúið því ekki. En núna er Bassi bara með litla mjóa löpp og haltrar þegar hann labbar en það á eftir að koma og hann á ekkert eftir að vera haltur. En Ég er svo ógeðslega þakklát dýralæknunum í Víðidal og þær eru allar yndislegar. ég gat hringt hvenar sem er sólahringsins í þær, og það varð enginn pirraður:)
Kveðja Sigga
Kveðja Sigga