Ég fór í afmæli hjá afa mínum í dag og í afmælinu gaf amma mín mér c.a 3 pönnukökur til þess að fara með heim. Ég fór með Bassa litla með mér auðvitað og á leiðinni heim stoppaði ég í búð og ætlaði að kaupa í matin og setti pönnukökupokan aftur í glugga þar sem Bassi átti ekki að ná í þær (og hann er auk þess í gifsi og hefði þá alls ekki átt að ná í pokann) en viti menn…… þegar ég kem til baka var búið að fara snyrtilega ofan í pokan og borða allar pönnukökurnar og hann sat ánægður á sínum stað og brosti til mín:)
Kveðja Sigga