Ég mæli með því að allir sem kalla sig hundavini lesi greinina sem birtist í Vísi í dag, titluð “Jaðar við illa meðferð á dýrum”. Þar kemur í ljós það sem ég og aðrir höfum verið að segja um hundabúið Dalsmynni er allt satt. Ég vil einnig ítreka það að eftirspurnin skapar framboðið. Hættið að versla við Dalsmynni, það er það eina sem getur stoppað svona “búfjárhald”.