Gelt stop Sæl, ég var að forvitnast um Geltstop tækið sem Dýraríkið hefur verið að auglýsa og komst að því að þetta er tæki fyrir mig og minn hund. Þetta er ól sem sett er á hundinn og hann látinn venjast henni í viku, svo er kveikt á hljóðnema í ólinni og í hvert skipti sem hundurinn geltir þá sprautast framan í hann vatn. Hann tengir þetta ekki við ólina og eftir tvær blautar vikur á hundurinn að vera hættur að gelta þó ólin sé tekin af honum.
Hún Doppa mín á við þetta vandamál að stríða að enginn má ganga fram hjá húsinu eða koma inn til okkar þá geltir hún eins og hún á lífið að leysa og er það orðið frekar þreytandi þar sem komið er ungabarn á heimilið sem hrekkur upp við geltið.
En þá er komið að vandamálinu, tækið kostar milli 16 og 17 þúsund krónur og finnst mér það mikið fyrir notkun í þrjár vikur, svo að ég var að huxa hvort einhverjir aðrir gætu huxað sér að taka þátt í kostnaðinum gegn því að fá afnot af tækinu. Ég gæti alveg beðið í einhverjar vikur, það gerir ekkert til.
Þetta tæki kemur í tveimur stærðum og þar sem Doppa er í minni kantinum eða 10kg yrði að kaupa minni stærðina. Ef einhver hefur áhuga á að kaupa þetta með mér endilega sendið mér póst á icecat@simnet.is.
Takk kærlega fyrir,
IceCat