Jæja núna verður Tína mín í viku án okkar í fyrsta skipti (við erum að fara til útlanda)
Fyrst það koma ekki margir til greina til þess að passa upp á hana vorum við að spá í að setja hana á hundahótel. Maður er samt búinn að heyra svo margar sögur um svona hundahótel að þetta er bara martröð fyrir hunda að fara þangað og svo líta þeir svo illa út þegar komið er heim. Ég skoðaði nokkrar síður en ég held að það sé ekkert að marka það.
Ef þið hafið einhvern tíma sett hundinn ykkar á svona hundahótel hvernig leist ykkur á það ? fannst hundinum þínum gaman þarna ? eða bara hvaða hundahótel mælið þið með ?
kv.Ellen