OK, það eru kannski sendir inn brandarar sem hafa birst bara nokkrum vikum áður eða eitthvað, en það þarf nú bara ekkert að vera að fólk viti af því! Hér eru nýir aðilar að skrá sig inn á hverjum einasta degi, og soldið leiðinlegt að þurfa að bakka um fleiri, fleiri blaðsíður bara til að tékka hvort maður sé að senda eitthvað inn sem hefur komið áður. Í meirihluta skiptanna sem þetta “oh, þessi var hérna fyrir viku!!!” commentið kemur, er það á eftir bröndurum sem ég hef aldrei heyrt áður!! Þið sem hafið hangið hérna í fleiri mánuði, leyfið okkur hinum að njóta þess að lesa “nýja” brandara án þess að þurfa að skammast okkar fyrir það. Ókey? ;)