Einu sinni var maður sem var að fara á hótel og hann spurði
“er eitthvað herbergi laust” þá sagði þjónninn “já ef þú ert ekki hræddur við drauga” nei nei sagði maðurinn. Allt í lagi hérna er lykillinn. og maðurinn fór inní herbergið og var að fara að opna skápin og heirð allt í einu “NÚ ÉT ÉG ÞIG!” og maðurinn stökk út um gluggan. Svo kom annar maður og spurði það sama og svo heirði maðurinn þegar hann var að fara að opna skápin “NÚ ÉT ÉG ÞIG!”
og hann stökk útum gluggan. Svona gekk þetta í smá tíma og svo kom síðasti maðurinn og hann opnaði skápin og þar var api að segja við bananan sinn “NÚ ÉT ÉG ÞIG!”