Ég var að dimmitera síðastliðinn föstudag, sem er ekki frásögufærandi nema hvað.

Ég stóð eiginlega á götu inn á bílastæði, þegar ég sá að það var bíll fyrir aftan mig að bíða eftir að keyra inn á stæðið þar sem ég stóð í vegi fyrir honum. Það var svo sætur gaur með svo fallegt augnaráð að keyra bílinn að ég alveg truflaðist, brosti eins og fáviti, sneri mér við og labbaði á staur!! og svona til að toppa þetta þá var ég í kindabúningi!!!

haha þetta atvik var klassi…
-Pláneta.