Jónas var staddur í lyftu í stóru og fallegu húsi í borginni við sundin og var á leiðinni upp. Þegar hann var kominn nokkrar hæðir upp, stoppaði lyftan og forkunarfögur dama gekk inn. Jónas fann að hún var með dýrt ilmvatn og hafði notað mikið af því. Stúlkan tók eftir því að hann var að nasa út í loftið og sagði með nokkrum þjósti “Romance frá Ralph Lauren, 15.000 krónur glasið.”
Stuttu seinna stoppaði lyftan aftur og inn gekk önnnur fegurðardís með mikið ilmvatn. Hún sá að Jónas var að þefa, svo hún leit niður til hans og sagði “Chanel No. 5, 20.000 krónur únsan.”
Um það bil þrem hæðum seinna stoppaði lyftan þar sem Jónas ætlaði út. Áður en hann fór út úr lyftunni, horfði hann í augun á stúlkunum, blikkaði augunum, beygði sig fram, rak við og sagði “Bakaðar baunir frá Heintz, 128 krónur dósin.”
Kveðja