Gunna fann töfralampa úti og nuddaði hann
svo að það kom andi uppúr.
Þú hefur frelsað mig frá 1000 ára vist þarna inni og
fyrir vikið færðu 3 óskir,
hvaða óskir sem er, sagði andinn.
Gunna var nú ansi glöð með það og byrjaði að óska sér.
Ég óska þess að verða ríkasta kona í heimi,
*kapúff*, andinn gerði hana að ríkustu konu heims.
Og Gunna hélt áfram,
Ég óska þess að eignast rosalega flottan mann,
*kapúff*, andinn uppfyllti það.
Ég óska þess að verða rosalega gáfuð, hélt Gunna áfram,
*kapúff*, og andinn breytti henni í mann.