Þegar ég var á leiðinni í skólann í morgun, leit ég til hliðar og þar var kona á splunkunýjum BMW. Hún var á svona 120 km hraða með andlitið upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig með meikup græjurnar í sitt hvorri hendi og annan olbogan á stýrinu. Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var bíllin hennar á leiðinni yfir á mína akgrein og samt hélt hún áfram að mála sig eins og ekkert væri sjálfsagðara. Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á roastbeefsamlokuna mína sem ég var með í vinstri hendinni. Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið og ná stjórn á bílnum sem ég stýrði með hnjánum, datt gemsinn minn úr hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var með á milli fótanna. Það varð til þess að brennheitt kaffið sullaðist á orminn langa og tvíburana tvo. Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna úr munninum og brendi hún stórt gat á sparijakkan og ég missti af mikilvægu símtali!
Hvað er að þessum helv…. konum ???????