Fékk hann í e-maili held að hann hafi komið hingað oft áður en
Whatever hér er hann:
Ekki deyja ráðalaus!
>
>Gamall maður bjó einn í Þykkvabænum.
>Hann langaði til þess að stinga upp kartöflugarðinn sinn, en það var
>mikil erfiðisvinna. Bubbi sonur hans, var sá eini sem hann hafði
>getað fengið til að hjálpa sér.
>En Bubbi var lokaður inni á Hrauninu.
>
>Gamli skrifaði honum bréf og sagði honum frá vandræðum sínum:
>
>Elsku Bubbi minn,
>
>Æ, mér líður hálf-illa, því það lítur út fyrir að ég geti ekki sett
>neinar kartöflur niður í garðinn þetta árið. Ég er bara að verða of
>gamall til þess að vera að stinga upp beðin. Ef þú værir hérna, ætti ég
>ekki í neinum vandræðum, því ég veit að þú mundir stinga upp beðin fyrir
>mig.
>Kær kveðja til þín, elsku sonur
>Pabbi
>
>Eftir örfáa daga, fékk hann bréf frá syni sínum :
>
>Elsku Pabbi
>Í GUÐANNA BÆNUM, ekki stinga upp garðinn !
>Ég gróf ránsfenginn og byssurnar þar
>Þinn
>Bubbi
>
>
>Í birtingu morguninn eftir komu hópar lögregluþjóna frá embætti
>Ríkislögreglustjóra og Selfosslögreglunni og umbyltu öllum beðunum, en
>fundu hvorki þýfi né byssur.
>Þeir báðu gamla manninn afsökunar og hurfu á braut.
>
>Sama daginn fékk hann annað bréf frá syninum :
>
>
>Elsku pabbi
>Drífðu nú í því að setja niður kartöflurnar.
>Við núverandi aðstæður get ég ekki gert betur.
>Þinn elskandi sonur
>Bubbi
Elinerlonli skrifaði: