Á eyðieyju einni fjarri allri mannabyggð (auðvitað) strandaði skip en á
skipinu var fólk samankomið af ólíkum þjóðernum. En það var ekki fyrr en
mánuði síðar sem greyið fólkið fannst og hafði þá ýmislegt á daga þeirra
drifið.
Strandaglóparnir voru:
2 ítalskir menn og ein ítölsk kona
2 franskir menn og ein frönsk kona
2 þýskir menn og ein þýsk kona
2 grískir menn og ein grísk kona
2 breskir menn og ein bresk kona
2 búlgarskir menn og ein búlgörsk kona
2 japanskir menn og ein japönsk kona
2 kínverskir menn og ein kínversk kona
2 bandarískir menn og ein bandarísk kona
2 írskir menn og ein írsk kona
2 íslenskir karlmenn og 1 íslensk kona
Mánuði síðar á þessari sömu eyju höfðu eftirfarandi atburðir átt sér
stað:

Annar Ítalinn drap hinn vegna ítölsku konunnar.
Frönsku mennirnir og franska konan lifa í sátt og samlyndi.
Þjóðverjarnir hafa komið sér upp mjög stífu vikulegu fyrirkomulagi um að heimsækja þýsku konuna.
Grikkirnir sofa hjá hverjum öðrum á meðan gríska konan þrífur og eldar handa þeim. Bretarnir bíða enn eftir að einhver kynni þá fyrir ensku konunni.
Búlgararnir horfðu lengi á sjóndeildarhringinn og svo á búlgörsku konuna og stungu sér síðan til sunds.
Japanirnir sendu símbréf til Tokýó og bíða enn leiðbeininga.
Kínverjarnir hafa komið upp apóteki, vínbúð, veitingastað og þvottahúsi og kínverska konan er barnshafandi af völdum “þeirra” því starfsmenn vantar. Bandaríkjamennirnir eru á barmi taugaáfalls því bandaríska konan kvartar í sífellu yfir líkamsvextinum sínum; yfir eðli konunnar; hvernig hún er fær um að gera hvaðeina sem þeir geta; nauðsyn þess að lifa fullnægjandi lífi; jafnri skiptingu á heimilisverkum; hvernig sandurinn og pálmatréin valda því að hún virðist feitari; hvernig síðasti kærastinn virti skoðanir hennar og kom betur fram við hana en þeir tveir; hve samband hennar við móður sína verður betra með degi hverjum og að lokum hve skattarnir eru lágir og að það skuli aldrei rigna.
Írarnir tveir hafa skipt eyjunni í norður og suður og sett upp landamæri. Þeir minnast ekki hvort til kynlífs hafi komið því það er allt í móðu eftir fyrstu lítrana af kókosviskíinu. En þeir eru sáttir því Bretarnir eru ekki að njóta sín.
Íslendingarnir eru orðnir stórskuldugir við verslanir og veitingahús Kínverjanna og brugghús Íranna.
Íslenska konan er búin að
sofa hjá ítölsku, frönsku og amerísku karlmönnunum á meðan íslensku karlmennirnir hafa verið önnum kafnir við að reikna út að þeir séu fallegastir, sterkastir, gáfaðastir og fjölmennastir miðað við höfðatölu.