Bóndi situr á þorpsbarnum og er frekar fullur, þegar maður kemur inn og spyr bóndann; “Hei, af hverju situr þú hérna á þessum fallega degi útúrdrukkinn?”
Bóndinn: “Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra”
Maðurinn: “Nú hvað gerðist svona rosalegt?”
Bóndinn:“Nú ef þú þarft að vita það… Í dag var ég að mjólka kúnna mína og sat við hliðina á henni. Um leið og fatan varð full, sparkaði beljan fötunni niður með vinstri fætinum.

Maðurinn: ”Nú það er ekki svo rosalegt, hvað er svona mikið mál við það?
Bóndinn: “Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra”
Maðurinn: “Nú hvað gerðist næst?”
Bóndinn: “Ég tók vinsti fót hennar og batt hann við stólpann á básnum með reipi. Svo settist ég niður og mjólkaði. Um leið og fatan var að verða full. Sparkaði beljan í hana með hægri fætinum og velti henni líka.
Maðurinn: ”Aftur?“
Bóndinn: ”Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra“

Maðurinn: ”Hvað gerðirðu þá?“
Bóndinn: ”Ég tók þá hægri fótinn og batt hann líka við stólpa á básnum.“
Maðurinn: ”Og hvað gerðirðu þá?“
Bóndinn: ”Ég settist niður og hélt áfram að mjólka hana, og um leið og fatan var að verða full þá velti helvítis beljan fötunni niður með halanum…“
Maðurinn: ”Vá þú hlýtur að hafa verið orðið pirraður þá?“
Bóndinn: ”Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra“
Maðurinn: ”Og hvað gerðirðu næst?“

Bóndinn: ”Sko…ég hafði ekki meira reipi svo ég tók af mér beltið og batt þannig halann á henni upp. Akkúrat þá, duttu niður buxurnar mínar niður og konan mín gekk inn."

;)