Maður einn var að drekka á bar eins og gengur og gerist, drakk hann sig svo blindfullan að á endanum var honum hent út fyrir óspektir og leiðindi. Byrjaði maðurinn að skjögra heim til sín, er hann sér nunnu labbandi hinum megin við götuna. Labbar hann rólega að nunnunni sem býður góðan daginn, en þegar hún er rétt búinn að sleppa orðinu kýlir karlinn nunnuna af öllu afli, og áður en nunnan getur stunið upp orði fær hún annað högg beint á nefið, þannig að hún dettur í götuna, tekur þá karlinn undir sig stökk og sparkar karlinn af öllu afli í rassinn á henni og endar með því að henda henni beint á vegg, og er hún liggur þarna hálfrænulaus, labbar karlinn að henni og segir “Það er ekki mikill kraftur í þér núna BATMAN!!!!!!!”.