Einu sinni var tölvunarfræðingur að fara yfir götu þegar hann heyrði frosk kalla á sig, “ Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu”
Strákurinn beygði sig niður og tók froskinn og stakk honum í vasann.
Froskurinn sagði aftur við hann: “ Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu þá skal ég vera hjá þér í eina viku.”
Strákurinn tók froskinn úr vasanum, brosti framan í hann og stakk honum aftur í vasann.
Froskurinn ræskti sig og sagði hátt: “ Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu þá skal ég vera hjá þér í eina viku og gera ALLT sem þú villt.”
Aftur tók strákurinn froskinn upp úr vasanum, brosti framan í hann og stakk honum síðan í vasann.
Þá sagði froskurinn við strákinn: “Hvað er að ? ”Ég sagði þér að ég er forkunarfögur prinsessa, mun vera hjá þér og gera allt sem þú villt. Af hverju villtu ekki kyssa mig ?“
Strákurinn svaraði: ”Sko sjáðu til, ég er tölvunarfræðingur. Ég hef ekki tíma fyrir kærustur en talandi froskur er alveg ótrúlega kúl"