Jæja.. Ég ákvað að varpa fram þessari hugmynd, fólk virðist almennt taka vel í þetta :)
Málið er að núna eru vinsældir húðflúra og líkamsgatana alltaf að aukast, fleira og fleira fólk er að “uppgötva” þennan svokallaða lífsstíl og hér á Huga er einungis lítill korkadálkur inni á hugi.is/tiska sem hægt er að spjalla um þessi málefni.. Mér finnst það persónulega ekki nóg… Það væri frábært að geta verið á sér áhugamáli þar sem eingöngu myndir/korkar/greinar/kannanir tengdar þessu verða sendar inn ..
Ég ásamt fleirum hér á Huga höfum oft verið að velta því fyrir okkur afhverju ekki er hægt að stofna nýtt áhugamál sem tengist eingöngu þessum málefnum? Ég er viss um að það verði aðsókn á það áhugamál enda tel ég þetta vera mikið vinsælla en margt annað hérna þótt það sé að sjálfsögðu einstaklingsbundið…
Ég býð mig fram sem stjórnanda á tattoo áhugamálinu ef það verður einhverntímann hægt að koma þessu áhugamáli af stað :)

Kv. PraiseTheLeaf