Ég held að ég sé kannski búinn að finna lausnina varðandi um þennan edit takka sem ég hef alltaf tautað um hér.

Margir segja að sá takki verði misnotaður. Hvernig væri þá að afhenda bara stjórnendum edittakkan og láta stjórnendur vita svo hvað þarf að laga ef það er eitthvað sem þarf að laga. Stjórnendur geta þá loksins fengið stærra hlutverk en bara eyða korkum og setja fólk í bann. Þannig forðist þið líka misnotkun. Eru þá allir sáttir með þessa hugmynd? Auðvitað veit ég að það skapar meiri vinnu fyrir stjórnendur að standa í svoleiðis veseni en það yrði samt þess virði ekki satt?