Ég næ ekki að kveikja á tölvunni minni. Var áðan að restarta, bara að gamni, og svo þegar hún var að ræsa sig aftur, þá fraus hún á þessari mynd: http://xs100.xs.to/xs100/06196/DSC01438.JPG . Jæja, ég slökkti á henni, kveikti aftur, og aftur fraus hún á þessum sama stað. Þetta gerði ég nokkrum sinnum, fór svo bara að gera annað í svona hálftíma, og prófaði aftur, ekkert gekk.

Hvernig get ég kveikt á tölvunni?

(já, ég veit, windows sökkar og allt það, ég er samt ekkert að fara að skipta yfir í linux eða whatever, a.m.k. ekki strax, þó að mig langi alveg…)