Ég var bara eitthvað að dunda mér á msn og þá sendi gaur mér eitthvað forrit sem ég hélt að væri meinlaust en þetta var vírus sem sentist til allra á msninu mínu og ég eyddi vírusnum út og hélt að það væri allt í lagi en þá kom hann bara aftur inn þegar ég fór inn á msn aftur. Hann hefur ekki gert neitt alvarlegt við tölvuna mína svo ég viti til en hann byrjar alltaf að sendast til allra þegar ég fer inn á msn þótt ég hendi honum út. Hvað á ég að gera?