Haldiði að það gæti verið til einhver vírus eða ormur eða eitthvað sem notar allt vinnsluminnið svo að tölvan er MJÖG hæg?
Ég er með dáldið gamla tölvu frá 98 og mér finndist það alveg skiljanlegt að hún væri svona hæg en þetta gerðist bara allt í einu, á einum eða tveimur dögum. Og svo ætti þetta að vera líka í lagi á síðum þar sem er nánast bara texti (hugi.is) er það ekki?

Og svo um þetta leiti hætti tölvan að geta slökkt á sér (shut down) svo að ég þarf að nota aðrar leiðir til að slökkva á tölvunni því að ég vil ekki hafa hana í gangi í margar vikur.

Er eitthvað hægt að gera í þessu?<br><br><a href="http://www.blog.central.is/urdurmaria“><font color=”navy"><i>Anyway the wind blows…</i></font></a
Shadows will never see the sun