Afhverju er til yfirstjórnendur?
Ástæðan er einföld. Hugi er gríðarlega stórt samfélag á vefnum og Ritstjóri getur einfaldlega ekki sinnt öllu á ásættanlegum tíma, því eru til yfirstjórnendur. Einnig þegar vefstjóri er fjarverandi eiga yfirstjórnendur að geta sinnt daglegri umsjón.
Hverjir eru yfirstjórnendur?
Aiwa, Stjarna4, Loki og ZiRiuS
Hvert er þeirra hlutvert?
Yfirstjórnendur eiga að hjálpa við daglega umsjón Huga. Í því felst t.d. þjónusta við notendur og stjórnendur áhugamála og framfylgja skilmálum Huga.
Hvað geta þeir gert?
Ásamt því að hafa öll réttindi sem venjulegir notendur hafa, geta yfirstjórnendur:
-
Bannað notendur tímabundið og ótímabundið (ekki IP tölur).
-
Samþykkt/hafnað stjórnendaumsóknum og sagt upp stjórnendum.
-
Séð kennitölur og kyn notenda.
-
Eytt greinum og þráðum á öllum áhugamálum.
-
Búið til og eytt korkum á öllum áhugamálum.
-
Hafa sömu réttindi og stjórnendur áhugamála nema það gildir fyrir öll áhugamál.
Hvað geta þeir ekki gert?
Yfirstjórnendur geta ekkert gert nema það sem er talið upp fyrir ofan.
Gilda sömu skilmálar fyrir yfirstjórnendur og aðra notendur?
Já og að auki hafa þeir samþykkt að halda fullum trúnaði og misnota ekki vald sitt.
Get ég orðið yfirstjórnandi?
Stutta svarið er nei. Yfirstjórnendur eru valdir af Ritstjóra og/eða Vefstjóra eftir þörfum. Í dag eru fjórir yfirstjórnendur og ekki verða fleiri gerðir að yfirstjórnendum í bili.