Kirsuberin mín Ég átti alltaf eftir að senda mynd hingað inn af húflúrinu mínu, það er komið um það bil hálft ár síðan ég fékk mér það.

Þetta er flúrað af honum Jason á Black Diamond Tatto og er mitt fyrsta tattoo. Ég vildi fá eitthvað kvenlegt og litríkt, og vildi helst hafa þetta svolitla blöndu af old-school og new-school stílnum, semsagt gamaldags viðfangsefni (kirsuberin) en í mjög ýktum og skemmtilegum litum.

Afsakið léleg gæði, þetta er tekið á webcam því ég týndi hleðslusnúrunni fyrir myndavélina mína…