Halló!
Ég var að velta fyrir mér hvort einhver gæti hjálpað mér, ég er búinn að vera að leita að vissum svona celtic rúnum sem mig langar að flúra á mig, en ég finn þetta hvergi á netinu eða neinstaðar. Fjölnir tattoo er með svona rúnir á innanverðum framhandleggnum, Siggi pönk er með svona á innanverðum kálfunum ef ég man rétt, Jói fel er með svona á framhandleggnum og sömuleiðis er Ragnar Sólberg með svona á innanverðum vinstri framhandleggnum.
En ég finn svona rúnir hvergi, er einhver hérna sem getur sagt mér hvað þetta er og hvar ég gæti skoðað svona?

Hérna eru linkar þar sem hægt er að sjá þetta:

http://viewmorepics.myspace.com/index.cfm?fuseaction=viewImage&friendID=10650250&albumID=735128&imageID=3986277

Glittir í þetta á framhandlegg hérna:

http://viewmorepics.myspace.com/index.cfm?fuseaction=viewImage&friendID=157045243&albumID=855199&imageID=2817451

Vonandi skiljið þið hverjum ég er að leita af, ef einhver getur sagt mér eitthvað um þetta væri ég mjög þakklátur!
-Izzy