Okay þetta er kannski ekki sniðugt, og veit - eða er nokkuð viss um að fullt af fólki á eftir að ráðleggja mér að gera þetta ekki eða whatever, ekki einu sinni viss um að ég mundi gera þetta - en ég var að spá. Ef ég mundi ætla að gata mig sjálfur í t.d. geirvörtuna, hvernig mundi ég gera það nákvæmlega? Hvað þyrfti ég til þess, hvað þyrfti ég að gera og hvað væri gott að gera í svona after care. Og hvað mundi ég setja í gatið, þar sem ég veit ekki hvar ég gæti keypt lokk, bý á Akureyri og ég kem vooða sjaldan suður. En líka væri gott að vita hvað þetta væri lengi að gróa, og hvort það væri mikil sýkingahætta og hvort það gæti verið e-ð alvarlega sýking.

Með fyrirfram þökk, í von um eins nákvæm svör og hægt er =)

-Izzy
-Izzy