Viðtal - Unnur Ranger Ég sendi frænku minni e-mail með spurningum af því að hún er með piercingstudio úti í Brasilíu…Njótið (þetta er hræðileg mynd af henni!)

Nafn: Unnur Delta Ranger

Aldur: 32

Hvað ertu með mörg líkamsgöt? 9

Hvar eru götin? Er með 2 helix í báðum eyrum og 3 lobe, svo er ég með í augnabrúninni og naflanum.

Hvenær fékkstu fyrstu götin þín? 13 ára, þessi týpísku göt í eyrun og svo þegar ég var 14 þá fékk ég mér navel og svo bættust hin götin við

Hvenær byrjaðir þú með stofuna þína? Þegar ég var 25 ára

Hvenær fékstu áhuga á því að verða gatari? Þegar ég hitti systur mannsins míns, hún er gatari

Hvar lærðirðu götun? Systir mannsins míns kenndi mér, Eva Switch

Hvað gatar þú? Lobe, helix, orbital, tragus, navel,nipple, bridge, eyebrow, labet, monroe, septum, toung og nostril. Langar samt að læra að gera Daith og rook

Hvaða gat er vinsælast? Lobe, helix og navel held ég

Hvað finnst þér um aldurtakmarkið? Fínt bara og ég vona að krakkar virði það og fari tekki að feika Id bara bíða þangað til þau verða 18 ára

Hvað finnst þér um kynfæragöt?
Æ ég veit það ekki, ég kann ekki að gera þau og persónulega fengi ég mér aldrei þannig

Hvað er yngsta barnið sem þú hefur gatað? 2 mánaða, skil ekki hvað fólk er að pæla að gata börnin svona ung!

Hvað er elsta manneskjan sem þú hefur gatað gömul? 65 ára karl og ég lét eitt lobe í hann

Hefur einhver einhvertímann reynt að fá götun undir aldri? Já, það kemur fyrir einu sinni til tvisvar í viku eða oftar og ég uppgötva kannski ekki alltaf

Hefur foreldri kært þig fyrir að gata barnið sitt? Jaa, það ætlaði einu sinni kona að kæra mig en hætti við þegar ég sagði henni að það hefði ekki verið neitt sem benti til þess að barnið hefði verið undir aldri

Hvað segirðu um húðflúr? Flott ef það er ekki of mikið, ég er sjálf með eitt sætt fiðrildi

Lokaorð? Piercing rules - nei heh djók
Can we bring yesterday back again